Staðsetning: Hafnafjörður
Hönnuðir: Ingibjörg Kristjánsdóttir, Hermann G Gunnlaugsson og Áslaug Traustadóttir.
Samstarf: Efla consulting engineers, Tera s/f, Vsb consulting engineers.
Verkkaupi: Harnarfjarðarbær
Hannað/Framkvæmt: Fyrri áfangi 2001–02, seinni áfangi 2007-08.
Samstarf: Efla consulting engineers, Tera s/f, Vsb consulting engineers.
Hönnun á útvistarsvæði, götu og gönguleið meðfram Læknum í Hafnarfirði, frá Hörðuvöllum að Austurgötu.
Verkefnið er framhald af frágangi á skóla- (nýi Lækjarskóli) og leikskólalóð við Hörðuvelli, sem var 1. verðlauna verkefni í samkeppni frá árinu 2000.
Lækjarsvæðið er mikilvægur hlekkur í útivistarkeðju sem tengir sjóinn og miðbæ Hafnarfjarðar aðliggjandi heiðum. Svæðið hefur þá sérstöðu að nýtast til útivistar jafnt að sumri sem vetri, en Hamarskotslækinn leggur iðulega á veturna og er þá nýttur vel af skautafólki. Mikið fuglalíf einkennir svæðið en votlendið sunnan við er ákjósanlegt fæðu- og hvíldarsvæði, auk þess sem tíðar ferðir Hafnfirskra fjöldskyldna niður að Læk til þess að gefa öndunum bæta um betur.
Eitt aðalmarkmið við hönnun svæðisins var að draga fram þessi sérkenni í umhverfinu og um leið undirstrika andstæður manngerðra og náttúrulegra þátta.
Mjög sterk rýmismyndun er einkennandi fyrir svæðið. Vatnið er lágpunktur og landið rís á þrjá vegu; Hamarinn til suðvesturs, hraunjaðarinn til austurs og byggðin í Hraununum til norðurs. Fyrir vikið eru vellirnir í miklu skjóli fyrir ríkjandi vindáttum. Sérstætt samspil mann-gerðra þátta og náttúrulegs umhverfis; hrauns, lækjar og votlendis er ein-kennandi.
Gerður var göngustígur niðri við vatnsborð meðfram læknum allt frá Hörðuvöllum. Við Skólabraut var stígurinn á hluta á brú þannig að vatnslistaverk fái notið sín sem best. Í lækinn voru sett nokkur fossa-þrep og eyjur stækkaðar með betri aðkomu fyrir fuglana.