Staðsetning: Fjarðabyggð, hafnarsvæði Reyðarfirði.
Notkun: Smábátahöfn
Landslagsarkitektar Landmótun: Aðalheiður E. Kristjánsdóttir, Þórhildur Þórhallsdóttir
Verkkaupi: Hafnarstjórn Fjarðabyggðar
Hönnunar- og verktími: 2010-2011
Stærð: um 10.000 m²
Hönnun á yfirborðsfrágangi við smábátahöfn, bílastæði, gönguleiðir, áningarstaðir og uppsátur fyrir báta.
Árið 2009 ákvað Hafnarstjórn Fjarðabyggðar að hefjast handa við lagfæringar á yfirborðsfrágangi við smábátahafnir í sveitarfélaginu. Lögð var áhersla á samræmdan frágang með það að leiðarljósi að bæta aðstöðu þeirra sem nota hafnirnar sem vinnusvæði en einnig aðgengi og dvalarmöguleika almennings.
Höfnin á Reyðarfirði var sú fyrsta sem var framkvæmd en það var gert strax eftir að smábátahöfnin þar var stækkuð árið 2010. Allt svæðið umhverfis smábátahöfnina neðan Ægisgötu var skoðað ásamt nærliggjandi göngutengingum. Uppsátur fyrir báta var afmarkað og áningarstaður gerður yst úti á hafnarkanti.
Smábátahafnir hafa mikið aðdráttarafl. Þær eru hluti af bæjarmynd heimamanna og eru mikilvægir áningarstaðir ferðamanna. Hönnunin tók mið af aðstæðum á hverjum stað en mikilvægt var að gera góðar gönguleiðir, dvalarsvæði og áningarstaði ásamt því að skilgreina aðkomuleiðir, bílastæði og möguleika á frekari uppbyggingu. Efnisval milli smábátahafna var samræmt þar sem bryggjutimbur var notað í bryggjupolla meðfram gönguleiðum, kanta á bílastæðum og í hjólagrindur. Stígar voru malbikaðir og dvalarsvæði hellulögð. Allur búnaður og lýsing var samræmd milli staða.